just bring attitude...
Tenglar
Leitarbox

03.02.2010 19:42:44 / jodisskula

Kæru vinir

Nú gæti farið að lifna yfir blogginu mínu aftur þó ég ætli nú ekki að lofa mikilli virkni. Ég mun þó láta helstu fréttir af fjölskyldunni rata hingað inn og svo bendi ég ykkur líka á

www.nino.is/magnusbjartur


Á nino erum við búin að bæta inn gríðarlegu magni af myndum, bæði frá Austurlandinu og Reykjavík á liðnu sumri, ferðamyndir frá Ítalíu, Sviss og Danmörku og svo þær nýjustu héðan frá Bifröst.

Með kveðju
Jódís


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2009 10:18:52 / jodisskula

má ég?

Á fimmtudögum geri ég svolítið spes, ég fer á AA fund í kirkju í Milanó, lestarkerfið ber mig þangað 40 mínútum of snemma svo ég læðist alltaf inn í kaþólska messu sem er í gangi á þessum tíma. Ég lauma mér inn um opnar dyr, á hliðinni framarlega. Það er alltaf svo gott að koma inn úr kæfandi hitabrælunni inní svalann. Það er rökkvað inni og yfir mig færist alltaf fullkomin ró. Alls konar fólk er þarna saman komið á hörðum kirkjubekkjunum, ýmist situr eða krípur fram og fer með maríubænir sínar í sífellu. Þarna eru gamlar konur, bankakallar, unglinstúlkur en engin börn. Presturinn hefur ráma hvíslandi rödd eins og Jóhannes Páll heitinn og hann er líka fjörgamall. Ég sest við þykka steinsúlu sem nær marga metra upp í loft því lofthæðin er mikil og hver krókur og kimi er útskorinn og málaður og uppi á altarinu er eins og önnur kirkja í dvergastærð en hún er úr skíra gulli. Kerti loga og flökkta í hvert sinn sem neðanjarðarlestinn æðir hjá ofan í jörðinni og ég heyri bara hvin og titra aðeins á bekknum. Ég loka augunum og reyni að hlusta á prestinn. Ég skil ekki mikið, ég stend upp þegar hinir gera það, ég signa mig þegar hinir gera það og ég tek í höndina á sessunaut mínum þegar hinir gera það. Ég skil þó eitt orð og það er grazie. Það er líka alveg nóg. Á þessum hálftíma sem ég sit þarna í hverri viku áður en ég fer svo á fundinn minn minnir mig alltaf á að vera þakklát, þakklát fyrir fjölskylduna mína, vini mína, námið mitt og allt mitt yndislega líf. Má ég vera þarna? Ég veit það ekki, en ég ætla samt að halda áfram að fara.

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2009 21:46:06 / jodisskula

Góðir dagar

Dagarnir líða einn af öðrum hér í sólinni á Ítalíu. Skólinn er rétt svo að komast í gang og einu tímarnir sem ég er byrjuð í eru í ítölsku. Guðrún er byrjuð í international management eitthvað en annað byrjar ekki fyr en eftir helgi. Ég er búin að hitta fólk frá öllum heimshlutum en skiptinemarnir eru mjög margir, í ítölskuhópnum mínum (en hóparnir eru nokkrir) er fólk frá Kanada, Þýskalandi, Belgíu, Tævan, Kína, Ástralíu, Frakklandi og Spáni svo eitthvað sé nefnt.
En við ákváðum að vera túristar í dag og tókum lestina um 10 leitið í morgun til Mílanó. Við fórum stelpurnar 3, ég, Guðrún og Saga með Magnús litla en Skúli var búinn að panta að vera einn heima og sofa í dag;) Við byrjuðum á því að taka underground nokkurn spöl frá miðbænum til að skoða götumarkað sem okkur hafði verið sagt frá. Fatamarkaðurinn var svona la la ekkert spes en nokkuð ódýr. En o my god, matarmarkaðurinn var sjúkur. Ávextir og grænmeti beint frá bónda, fersk kirsuber, vínber, epli og perur og svo alls konar grænmeti og ávextir sem ég þekki ekki einu sinni, fengust alla vega aldrei í KHB haha;)
Næst var ferðinni heitið í risastórann Kastala sem er eitt af aðalsmerkjum Milanóborgar, Castello Sforzesco. "With its seven centuries of history, Castello Sforzesco has witnessed the glorius periods and dramatic moments of Milan" , það er ekki amalegt! Kastalinn er sá stærsti sem ég hef komið í og er alveg svona Hróa hattar eitthvað með stóru torgi í miðjunni. Hann hýsir 11 söfn og tókum við svona hraðferð í gegnum þau. Við enduðum svo góðann dag með því að grilla nautavöðva og fá okkur ís. Lífið er ósköp ljúft og ég er endalaust þakklát fyrir þau tækifæri sem Guð gefur mér. Ég á yndislegt líf og ég nýt þess líka til fulls. Hér loma svo nokkrar myndir af góðum degi.



» 2 hafa sagt sína skoðun

01.09.2009 15:26:46 / jodisskula

Castellanza

Mig langar að blogga smá meðan ég er á Ítalíu. Við komum hingað 18 ágúst og lentum um kl 10 að morgni að staðartíma. Við tókum að sjálfsögðu vitlausa lest á vellinum og lentum inn í Milanó:) En að lokum komumst við til Castellanza sem er pínulítill háskólabær skammt frá Milanó. Bærinn er ósköp lítill og ólíkur öðrum bæjum á Ítalíu að því leiti að yfirleitt eru kirkja og torg í miðjunni og bærinn svo í hring út frá því og þannig liggja þeir hver við annan út um allt. Castellanza byggðist hins vegar út frá ævintýri manns sem byggði hér bómullarverksmiðju. Hann byggði svo skóla og sjúkrahús og auðvitað kirkju fyrir vinnumennina sína og þannig varð bærinn til. Hér er því enginn eiginlegur miðbær heldur eru gömlu verksmiðjubyggingarnar í miðjunni, en það vill nú svo frábærlega til að þeim var breytt árið 1991 í Universitá Carlo Cattaneo sem er einmitt skólinn minn. Þegar við komum var ógurlega heitt enda hitabylgja á Ítalíu. Við Magnús vorum ekki alveg að fíla það nógu vel en það var samt fljótt að venjast. Hitinn var yfir 35 gráður fyrstu dagana en er núna svona um 30 gráður.
Það er yndislega fallegt hér og í gegnum bæinn rennur lítil á sem Magnús hefur svo gaman af að horfa ofan í af litlu göngubrúnni og skoða fiskana. Við búum í fjölbýlishúsi sem er bleikt og mjög fallegt:) Í bakgarðinum búa tveir hundar, nokkrir kettir og fullt af hænum. Við vöknum því við hanagal á hverjum morgni. Við erum búnar að fá okkur rosmarin og basiliku í eldhúsgluggann og ég er að reyna að elda svolítið ítalst. Það sem kom mér á óvert við ítalska matargerð er að þeir gera óætar pizzur með dósasveppum og þeir þekkja ekki hvítlauksolíu;)

En nóg í bili. Ætla að vera dugleg að setja inn færslur reglulega þar sem fullt af ferðalögum eru framundan, bæði með skólanum og svo ætlum við líka bara að þvælast sjálfar um.

ástarkveðja frá Castellanza.


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.06.2009 09:45:56 / jodisskula

Sveitasæla

Halló kæru vinir!
Héðan er allt gott að frétta, við erum á Egilsstöðum núna og verðum fram að verslunarmannahelgi. Ég og Skúli erum að vinna í enn-einum sem er ljómandi gaman en Magnús er á leikskólanum hérna í Fellabænum. Við söknum mömmu Guðrúnar mjög mikið en hún kemur sem betur fer eftir eina viku til okkar og verður þá hér líka. Það er orðin talsverð spenna í mannskapnum fyrir Ítalíuferðinni en við förum í skiptinámið 18 ágúst. Í gær gengum við frá fjarnámi í 4 áföngum fyrir Alex Skúla í ME en Saga ætlar að vera í fjarnámi frá Borgarnesi. Ég er á fullu að læra fyrir próf sem ég þarf að taka í júlí. Annars er allt í ljóma og sóma þó að sumarið virðist ætla að láta bíða eitthvað eftir sér. En það eru komnar nýjar myndir á síðuna hans Manga svo endilega kíkiði þangað og munið að skrifa í gestabókina:)

Magnús að prófa mótorhjólið hennar Heiðrúnar Önnu frænku sinnar á Hafrafelli:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2009 19:25:40 / jodisskula

Fréttaskot

Ég hef tekið ákvörðum um að taka ekki sumarönnina sem er að byrja, það er bara of mikið álag á heimilið að svo stöddu. Þess í stað ætla ég að nota tímann til að læra fyrir þau 2 tvö próf sem ég á eftir og pakka niður dótinu okkar og sinna börnunum út maí. Svo er stefnan tekin á Egilsstaði þar sem við ætlum að ala manninn í júní, júlí. Austfirðingar geta því tekið gleði sína á ný!

http://3.bp.blogspot.com/_TRl6WKh3vLo/SZwoOA7AKbI/AAAAAAAABIw/IS67JNGwW_M/s400/im+coming+home.bmp


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 22:44:16 / jodisskula

Málsvörn

Í dag var mín fyrsta málsvörn í lífinu og gekk hún frábærlega vel. Auðvita var þetta erfitt, ég þurfti að standa uppi fyrir framan 6 manna viðveruhóp nemenda, fundarstjóra og 2 kennara og svo var hópur áhorfenda í sal. Ég tók að mér flutnings verkefnisins og það kom því í minn hlut að standa í pontu og flytja kynningu á verkefninu en það tók um 15-20 mínútur. Svo voru spurningar kennara og svo nemenda. Allt gekk eins og í lygasögu og ég er yfirmáta þreyttur en ákaflega hamingjusamur laganemi sem er að klára fyrsta árið sitt í viðskiptalögfræði.

God is good!

http://www.peoplespressnews.com/blog/images/happy-face.gif

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2009 10:15:45 / jodisskula

Páskaegg

Páskaeggjakaupum er lokið í ár en að þessu sinni fjárfesti ég í suðusúkkulaði. Ég er ótrúlega spennt þar sem það er alveg í uppáhaldi hjá okkur öllum. Við völdum öll sem sagt Síríus Konsum páskaegg frá Nóa síríus en ég hef aldrei haft smekk fyrir öðrum páskaeggjum en þeirra. Magnús fékk reyndar eitt lítið nr.2 en ég veit að hann verður voða glaður með það enda algjör súkkulaðigrís þá sjaldan hann kemst í svoleiðis gúmmulaði.
Annars gistu mamma og Jón hjá okkur í fyrri nótt og við brðuðum lambalæri ættað úr Skriðdal. Hvort það var uppruninn eða eldamennskan skal látið liggja á milli hluta en veisla var æðisleg og mamma, Jón og Alex Skúli fóru svo í gærmorgun Vestur á Grund en það er ættaróðalið hans pabba. Við ætlum svo að rúlla til þeirra á morgun eða hinn. Annars er ekkert planað nema að glápa á flakkarann, éta súkkulaði og labba um fallegu sveitina okkar hér í Borgarfirðinum. Það eina sem skyggir á fullkomna lífshamingju mína núna er sú staðreynd að páskaskrautið mitt sem ég hef sankað að mér árum saman er týnt og tröllum gefið:( En annars er allt í blóma og sóma og þá helst birkigreinin okkar Magnúsar.

Gleðilega páska

P.S myndavélin er biluð svo hér er bara mynd af páskunum í fyrra.




Þessi er tekin um síðustu helgi hjá Kollu




» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2009 12:38:23 / jodisskula

Drepsóttir

Nú herja hér veikindi á heimilisfólk jafnt sem skepnur. Trýna gamla hefur verið með sýkingar í nokkrar vikur sem 3 heimsóknir til dýró og endalausir pensilínkúrar og krem virðast ekkert slá á og hún bara liggur hljóð í bóli sínu og er lasin. Magnús er veikur í dag og unglingarnir voru í bælinu til skiptis alla síðustu viku. Við gömlu skörin erum þó heilsuhraustar og látum ekkert á okkur fá. Erum á fullu í misserisverkefnunum okkar sem taka allan tíma í heiminum en það sér nú fyrir endan á þessu.
2 bræður Guðrúnar fermdust í gær og allt fór það fram með miklum sóma. Við átum því yfir okkur í tveim veislum þann daginn og nú tekur við svelti fram að páskum.... alveg í dag, morgunn og hinn haha;)

En best að fara að sinna litla kallinum.

http://michelelongoeder.com/images/FluMan.gif

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2009 17:04:52 / jodisskula

leti

ósköp er ég eitthvað þreytt í dag og nennulaus. Við ætluðum í borgina en ég bara nenni ekki af stað og er búin að fresta því til morguns. En þá er okkur heldur ekki til setunnar boðið því á sunnudaginn eru tveir litlir bræður hennar Guðrúnar að fermast, einn hjá tengdapabba og einn hjá tengdamömmu. Við ætlum því að vera frá laugardagsmorgni í undirbúningi og að hitta vini og ættingja, suma komna frá útlöndum:)

Við Magnús erum að hugsa um að fara út og klippa eina birkigrein og setja hana í vatn svo að páskarnir geti komið í heimsókn til okkar um næstu helgi:)
http://www.mumknowsbest.co.uk/dbimages/feature/Home_Page_-_Easter.jpg

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2009 21:35:03 / jodisskula

Hvað er málið með veðurfarið?

Þetta er væntanlega fyrsti í páskahreti geri ég ráð fyrir og að íslenskum sið gengur svo á með hreti og freti til skiptis langt fram á sumar:haha: En það er í lagi.  Hér inni er hlýtt og notalegt, Magnús og Trýna sofa hvort í sínu bóli, Saga er að teikna og Skúli er í tölvunni. Uppþvottavélin malar notalega í eldhúsinu og mér líður bara vel í eigin skinni aldrei þessu vant. Konan mín blíða er á leiðinni heim í vonda veðrinu. Allt verður fullkomið þegar hún verður komin í hús:)

Það eru miklar vangaveltur um ítalíuferðina hjá öllum í fjölskyldunni, nema kannski Manúsi. Saga veltir því fyrir sér hvort hún hafi nokkuð gagn né gaman af að læra tungumálið, Alex hvort hann geri ekið skellinöðru þar ytra, við Guðrún erum aðalega að spá í hvaða kúrsa við eigum að velja okkur. Heiða lánaði okkur "ítölsku fyrir byrjendur" bækurnar sínar en hún er sérleg áhugamanneskja um tungumálið síðan hún vann með gullmolanum Fabio á Ölstofunni. Við hittum Fabio kallinn á bókhlöðunni um daginn og það er gott að þekkja einn svona innherja þegar flutt er í annað land, en hans heimabær er ekkert svo svakalega langt frá Castellanza.
En best að fara að gera eitthvað af viti og hætta í þessari tölvudröllu. Ég held að líf okkar allra hafi verið svo mikið innihaldsríkara áður en við eignuðumst tölvur og gemmsa. En það verður víst veruleikinn úti því það er bara notast við gamla góða blýantinn og stílabókina þar:)

P.s ég fann hana Ingunni mína Stefáns á facebook sem ég held að hafi verið mikill fengur, hún býr hér ekki svo langt í burtu og ef ég held rétt á spöðunum gæti ég kannski komist í sauðburð!! já takk!!!



http://www.saudfe.is/saudfe/images/stories/frettir/vor3.jpg


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2009 14:53:45 / jodisskula

Gleðidagur

Yndislegur dagur í dag. Við erum í Reykjavík og Magnús Bjartur er í heimsókn hjá ömmu sinni, Guðrún er á landsfundi Samfylkingunar. Við tókum svona gamaldags skemmtidag, ég, Heiða syss, Skúli skrans og Saga. Við borðuðu KFC, rúntuðum Laugarveginn, fórum í Nexus og vorum bara að njóta lífsins. Ég elska fólkið mitt svo mikið. Það er svo gott að nota frídagana sína í eitthvað fallegt. Núna erum við Saga að taka Death Note maraþon. Erum komnar á þátt 20:)

Jæja best að týna sér í heimi Shimigami:)
http://images.friendster.com/images/widgetDirectory/widgetThumbs/_48906_DeathNote_Anime_Cast_500.jpg


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2009 13:42:26 / jodisskula

Búin í prófum!

Ég er búin í prófunum :haha: Hef lokið mínu fyrsta ári í laganámi við Háskólann á Bifröst. Ég er svo glöð og kát með þessa ákvörðun mína að fara í nám og akkúrat þetta nám. Núna byrjar svo næsta lota sem er misserisverkefnið mitt en svo tekur sumarönnin við. Það er vor í lofti og lífið er dásamlegt.




O þetta verður svo sjúklega gott sumar og svo bara sewwt sweet Italy):):)

http://www.ndesign-studio.com/images/portfolio/illustration/summer-1.jpg

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.03.2009 22:11:27 / jodisskula

Baby we are going to Italy!!!!

Þessi skilaboð bárust mér frá konunni minni í dag!!! Við erum sem sagt á leið í skiptinám í Universitá Carlo Cattaneo sem er í bænum Castellanza um 40 min frá Milano. Við förum öll í þessa ævintýraferð og  munu stóru krakkarnir vera í fjarnámi frá menntó og fara á ítölskunámskeið. Við förum í ágúst og komum heim rétt fyrir jól:) Er ekki lífið dásamlegt!!!

With love,
Yoda, stud.jur;)

http://www.marmonti.com/inglese/images/map1.gif
Castellanza er þarna rétt fyrir neðan Nizzolina.



» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2009 00:35:27 / jodisskula

Fésbókarfíkn?

Ég lét til leiðast og er nú stoltur eigandi Facebook acount. Það var sérlega heimskuleg hugdetta 2 vikum fyrir próf:$ Ég finn það strax á fyrstu dögunum að ég hafði aldeilis rétt fyir mér fésbókarófétið og að ég sogast nær og nær stjórnlausu fíknarástandi og ekki bætir úr skák að þetta er tengt við tölvupóstinn minn svo stanslaust poppa upp skilaboð um að þessi eða hinn sé að gera eitthvað á fésinu sem ég hreinlega verði að skoða strax. Þetta stefnir í að verða margfaldur tímaþjófur og toppa þar með msn, blogg og fréttamiðlafíkn mína sem þó náði hættustigi fyrir löngu töngu tá...
En annað er það að frétta að við spúsurnar fórum í leikhús um þar síðustu helgi og sáum þar sýningyna Rústað í leikstjórn Kristínar Eysteins og voru þar fremst í flokki Ingvar Sig og mín kæra vinkona Kristín Þóra. Ég ætla ekkert að segja um þetta nema að ég þorði ekki að horfa allan tímann og kúrði um tíma í fangi Guðrúnar sem er öllu hraustari þegar kemur að hinu ljóta í heiminum. En eftir sýninguna fór ég faðmaði leikarana og sagði Kr Þóru hvað ég væri glöð með að allt væri í lagi með hana ..... Lifði mig sennilega aðeins of mikið inn í þetta. En það er beutyið við leikhúsið.
Annars er ég nú þess heiðurs aðnjótandi að sitja tíma hjá Sir Sigurðu Líndal hirðlögmanni Íslensku krúnunnar og er það eitt það frábærasta sem á daga mína hefur drifið í þessum skóla. Hann er pinku lítill mölétinn kall sem ég væri til í að eiga sem gæludýr. I love the guy!
En próf eru að nálgast og planið er að fara og nýta út úr tengdafjölskyldunni alla þá pössun fyrir Manga mandarínu sem í boði er og hreiðra um sig á Bókhlöðunni næstu tvær helgar. Svo ef einhver veisluhöld eða gleðskapur er framundan þá er ég game.... Maður verður nú að ná andanum á milli bóka ekki satt....



» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 51